Hraunaði yfir stjörnu Liverpool

Mo Salah reifst við Jürgen Klopp er Liverpool mætti West …
Mo Salah reifst við Jürgen Klopp er Liverpool mætti West Ham. AFP/Ben Stansall

Egyptinn Mohamed Salah er ekki uppáhalds leikmaður Graeme Souness goðsagnar Liverpool en Souness fór ófögrum orðum um Salah í Three Up Front-hlaðvarpinu.

Souness er orðinn þreyttur á hegðun Salah, sem hefur verið aðalstjarna Liverpool-liðsins undanfarin ár. Salah reifst við knattspyrnustjórann Jürgen Klopp í leik við West Ham um síðustu helgi og Skotanum var ekki skemmt.

„Salah er eigingjarnasti leikmaður sem ég hef séð. Hann er snöggur í fýlu þegar hann er tekinn af velli, líka þegar hann er búinn að skora tvö mörk.

Hann hefur mikið álit á sér og verður reiður þegar hann er ekki í byrjunarliði. Hann á stærstan þátt í þessu rifrildi við Klopp,“ sagði Souness og hélt áfram gagnrýninni.

„Hann fer í felur þegar einhver brýtur á honum snemma. Eins og Lisandro Martínez á Old Trafford á síðustu leiktíð. Salah var hræddur við hann allan leikinn. Ég held hann sé á leið frá félaginu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert