Talsverð mengun á Ísafirði

Það glitti varla í Keili vegna mengunar í dag.
Það glitti varla í Keili vegna mengunar í dag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Nú í kvöld hefur styrkur SO2 farið hækkandi á Ísafirði. Ekki er nettengdur mælir á Ísafirði en færanlegur mælir á staðnum sýnir að mengun er talsverð.

Íbúar eru því hvattir til að kynna sér leiðbeiningar á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Landlæknisembættisins um áhrif loftgæða á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð við SO2 frá eldgosinu. Til að minnka áhrif mengunar innandyra er íbúum ráðlagt að loka gluggum og hækka í ofnum

Á Facebook-síðu Almannavarna kemur fram að borist hafi upplýsingar um talsverða gasmengun á Kirkjubæjarklaustri í kvöld. Íbúar þar eru hvattir til að halda sig innandyra, loka gluggum og hækka í ofnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert