Sjá ekki til lands í læknadeilu

Verkfallsaðgerðir hefjast á mánudag náist ekki samkomulag fyrir þann tíma.
Verkfallsaðgerðir hefjast á mánudag náist ekki samkomulag fyrir þann tíma. mbl.is/Árni Sæberg

„Við metum ástandið þannig að það sé ekki neitt að þokast í samkomulagsátt,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, en félagið fundaði með fulltrúum samninganefndar ríkisins hjá Ríkissáttasemjara.

Fundurinn hófst klukkan 15 í dag og stóð hann yfir í hálftíma. Þorbjörn segir að ríkissáttasemjari vilji halda viðræðunum áfram og verður annar fundur í deilunni á fimmtudag klukkan 15. 

„Það mjakast ekki neitt í átt að samkomulagi og styttist náttúrulega í mánudaginn,“ segir Þorbjörn og vísar til boðaðra verkfallsaðgerða Læknafélagsins. Náist ekki samkomulag hefjast þær 27. októ­ber og standa til 11. des­em­ber. Þó verður verk­fall aðeins ákveðna daga og aðeins mun hluti lækna fara í verk­fall hverju sinni.

Vinna lækna í verk­falli verður í sam­ræmi við und­anþágulista sem fjár­málaráðuneytið birti í aug­lýs­ingu nr. 101/​​​​2014 og er gert ráð fyr­ir að á þeim dög­um sem efnt er til verk­falla verði hverju sinni tryggð sam­bæri­leg mönn­un og tíðkast á frí­dög­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert