Víða hálka á vegum

Vegir á Suðurlandi eru nú að mestu greiðfærir, en þó má sums staðar finna hálkubletti. Einnig eru vegir mikið auðir við Faxaflóa en hálka er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Hálka er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og eins á köflum á láglendi. Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Sömu sögu er að segja á Austurlandi en þar er hálka eða hálkublettir.

Greiðfært er frá Eskifirði suður um. Á Suðausturlandi er hálka á kafla vestan við Kirkjubæjarklaustur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert