Spá mengun á SV-landi

Mengunarspá dagsins
Mengunarspá dagsins Af vef Veðurstofu Íslands

Spáð er vaxandi austanátt í dag og því má búast við gasmengun frá eldgosinu víða á vestanverðu landinu á svæði sem takmarkast af Reykjanesskaga í suðri, Barðaströnd í vestri og Húnaflóa í norðri.  

Á morgun (föstudag) er spáð austanstormi og áfram má búast við gasmengun fyrir vestan eldstöðvarnar á svæðinu frá Hvalfirði í suðri og norður á Breiðafjörð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert