Ætlaði að smygla fíkniefnum inn á Litla Hraun

Fíkniefnahundurinn Buster var athafnasamur um helgina þegar hann fann kannabisefni hjá fjórum ungmennum.

Þá var karlmaður var handtekinn á Litla Hrauni grunaður um að ætla að smygla fíkniefnum inn í fangelsið. Við leit á honum fundust umbúðir sem hann hafði fest við líkama sinn. Inni í þeim voru töflur og duft. Efnin verða send til rannsóknarstofu Háskólans til greiningar, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert