Leita að ungum leikkonum

Anna Gunndís er bæði leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar.
Anna Gunndís er bæði leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar.

Framleiðslufyrirtækið Kusk leitar nú að ungum leikkonum í aðalhlutverk fyrir stuttmyndina I Can't Be Seen Like This eftir Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur. Konur eru í miklum meirihluta við gerð myndarinnar og eru allar helstu lykilstöður við framleiðslu hennar í höndum kvenna.

Myndin I Can't be seen like this fjallar um tvær ungar systur sem ákveða að baka köku í tilefni afmælis pabba síns. Allt fer úr böndunum þegar hárið á þeirri yngri festist í hrærivélinni og helmingurinn tætist af. Atburðurinn afhjúpar bresti í sambandi systranna sem þær þurfa að horfast í augu við. Ólafur Darri Ólafsson og Einar Aðalsteinsson eru meðal leikara í myndinni en stefnt er á tökur í janúar 2015 og frumsýningu í New York í maí 2015.

Myndin byggist að hluta til á reynslu leikstjórans frá því hún var yngri þegar hún missti hárið í hrærivélinni.

„Það var oft mikill hasar á heimilinu enda vorum við sjö systkinin. Þessi mynd er óður til systra,  ég var yngst og þurfti snemma að læra að slá frá mér, annars stálu þær af mér bæði sælgæti og peningum,“ segir Anna Gunndís sem einnig er leikstjóri myndarinnar. „Ætli þær hafi ekki kennt mér að standa í lappirnar fyrir vikið. Að eiga systur er ómetanlegt og fallegt en stundum átakanlegt.“          

I Can't Be Seen Like This er fyrsta stuttmynd Önnu Gunndísar sem hún tekur upp á Íslandi og hefur hún fengið í lið með sér tökulið frá Íslandi og úr kvikmyndadeild NYU. Kvikmyndataka er í höndum Ines Gowland sem er kvikmyndagerðarkona frá Argentínu, framleiðandi er Sydney Buchan og um tónlistina sér Ariel Marx og allar stunda þær meistaranám við New York University.

Anna Gunndís leitar nú að ungum og efnilegum leikkonum á aldrinum 8-12 ára til að fara með aðalhlutverk í myndinni. Áhugasömum er bent á að senda 1-3 nýlegar ljósmyndir og eftirfarandi upplýsingar: fullt nafn, aldur og hæð, að auki símanúmer og nafn forráðamanns á netfangið casting@kusk.is. Prufurnar verða haldnar í desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert