Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur

Að sögn lögreglu á Suðurnesjum varð áreksturinn á einum af …
Að sögn lögreglu á Suðurnesjum varð áreksturinn á einum af hættulegustu gatnamótum Reykjanesbrautar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur í Reykjanesbæ við Fitjar í dag. Tveir bílar skullu saman, jeppi og fólksbifreið. Þeir sem fluttir voru á slysadeild voru ökumaður og farþegar í fólksbílnum.

Ekki er vitað um meiðsl fólksins. Dráttarbíll flutti báðar bifreiðarnar af vettvangi.

Að sögn lögreglu á Suðurnesjum varð áreksturinn á einum af hættulegustu gatnamótum Reykjanesbrautar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert