Gæti orðið að alræmdu illviðri

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Verði veðrið sem spáð er á morgun og fram á mánudag eins slæmt og gert er ráð fyrir gæti það orðið svipað alræmdu illvirði sem átti sér stað í febrúar árið 1991 sem olli miklu eignatjóni. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni.

„Útlit er fyrir að mjög djúp og kröpp lægð fari skammt fyrir vestan land þótt vissulega sé heldur snemmt að geta sér til um nákvæman ferli lægðarmiðjunnar. Dýpt lægðarinnar, lögun og ferill ráða vitaskuld mestu um hversu slæmt veðrið verður. Talið er líklegast að eftir miðjan dag á morgun gangi í SA storm og jafnvel ofsaveður með slyddu og rigningu á láglendi, en snjókomu til fjalla. Um kvöldið og nóttina snýst síðan í skammvinna en harða SV-átt um allt land. Veðurhæðin verður hvað mest vestan- og norðvestantil. Um leið kólnar aftur með slyddu og síðar éljum,“ er haft eftir honum í tilkynningu frá vátryggingafélaginu VÍS.

Ennfremur er haft eftir Einari að lægðin sem gengið hafi yfir landið í febrúar 1991 hafi verið óvenjukröpp og ekki hafi tekist að spá fyrir um veðrið sem fylgdi henni. Staðan sé önnur í dag. Mikilvægt sé því að búa sig undir veðrið og fylgjast vel með þróun mála. VÍS hvetur fólk til þess að undirbúa sig í tíma með því að setja lausa muni inn, binda þá niður, fergja eða koma í skjól. Húsbílum, kerrum, landbúnaðartækjum og þess háttar þurfi að koma í var og verktakar þurfi að ganga vel og tryggilega frá vinnusvæðum sínum. Þá verði niðurföll að vera hrein vegna yfirvofandi vatnsveðurs. Gangi spár eftir ætti fólk ennfremur ekki að vera á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert