Svona var ofsaveðrið 1991

Rætt hefur verið um að óveðrið sem nú gengur yfir landið kunni að verða svipað og óveðrið sem gekk yfir það 3. febrúar 1991. Hér á eftir fer lýsing á veðrinu þá eins og hún birtist á forsíðu Morgunblaðsins 5. febrúar sama ár:

„Engin alvarleg slys urðu á fólki, en gífurlegt eignatjón varð um sunnan-, vestan- og norðanvert land á sunnudag í einhverju mesta fárviðri sem gengið hefur yfir í manna minnum. Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi telja að eignatjón á landinu gæti numið á annan milljarð króna, en skýrsla Almannavarna verður rædd á ríkisstjórnarfundi í dag.

Nokkur hús til sjávar og sveita eyðilögðust og mjög mörg skemmdust meira eða minna. Þakplötur og annað lauslegt fauk eins og skæðadrífa um allt og tré rifnuðu víða upp með rótum. Lögreglu- og slökkviliðsmenn, björgunarsveitir og aðrir sjálfboðaliðar lögðu sig víða í mikla hættu við að bjarga verðmætum. Veðrið skall á á sunnanverðu landinu á tíunda tímanum og fór norðureftir. Tíu mínútna meðalvindhraði á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist 110 hnútar og hefur Veðurstofan aldrei mælt meiri vindhraða hér á landi.

Á flestum þéttbýlisstöðum og nær öllum sveitabæjum á óveðurssvæðinu urðu einhverjar skemmdir. Víða horfði fólk til sveita á útihús takast á loft og jafnvel springa í tætlur undan veðurofsanum. Sauðfé drapst þegar það lenti undir húsarústum. Gróðurhús eyðilögðust víða á Suður- og Vesturlandi. Flugvélar og bátar eyðilögðust, eða urðu fyrir skemmdum, fjórir byggingarkranar og tugir bíla eyðilögðust og hundruð bíla skemmdust. Í Reykjavík hafa orðið mestu gróðurskemmdir sem sögur fara af.

Lauslegt mat í gærkvöldi benti til þess að allt að þriðjungur þeirra einstaklinga, sem vurðu fyrir tjóni af völdum fárviðrisins, hefði verið ótryggður.“

Hér má horfa á svipmyndir frá ofsaveðrinu 1991

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert