Brattabrekka áfram ófær

Það er víða ófært. Myndin er úr safni.
Það er víða ófært. Myndin er úr safni. mbl.is/Styrmir Kári

Hálkublettir eru á Hellisheiði en hálka í Þrengslum og Sandskeiði. Hálka er einnig á flestum vegum á Suðurlandi og óveður á Kjalarnesi.

Ófært er á Bröttubrekku og ekki reiknað með að verði fært í kvöld.  Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt skyggni.  Hálka er annars víða á Vesturlandi, éljagangur og skafrenningur á fjallvegum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem hér er í heild sinni:

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru á Hellisheiði en hálka í Þrengslum og Sandskeiði. Hálka er einnig á flestum vegum á Suðurlandi og óveður á Kjalarnesi.

Ófært er á Bröttubrekku og ekki reiknað með að verði fært í kvöld.  Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt skyggni.  Hálka er annars víða á Vesturlandi, éljagangur og skafrenningur á fjallvegum.

Á Vestfjörðum er hálka og skafrenningur á fjallvegum á sunnanverðum fjörðunum en  snjóþekja og éljagangur á Gemlufallsheiði. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði en snjóþekja og skafrenningur á Þröskuldum. Súðavíkurhlíð er nú opin og er þar snjóþekja og skafrenningur og ennþá varúðarstig vegna snjóflóða og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát.
 
Á Norðurlandi vestra er víða hálka og skafrenningur og snjókoma á stöku stað. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Þverárfjalli og ófært yst á Siglufjarðarvegi.

Norðaustanlands er snjóþekja, hálka eða þæfingsfærð og snjókoma, éljagangur og víða skafrenningur. Nú er búið að opna Ólafsfjarðarmúla og er þar þæfingsfærð og ennþá snjóflóðahætta.  Mjög slæmt skyggni er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og hálka og skafrenningur.

Lokað er á Fagradal, þæfingsfærð og skafrenningur á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra  en snjóþekja í Oddskarði. Hálka er á Vopnafjarðarheiði en  annars snjóþekja og éljagangur víða á Austurlandi.

Hálka er víða við suðausturströndina en þæfingsfærð milli Kirkjubæjarklausturs og Mýrdalssands. Óveður er undir Eyjafjöllum.

Siglufjarðarvegur

Vegna óvenju mikils jarðsig á Siglufjarðarvegi eru vegfarendur beðnir að gæta ýtrustu varúðar.

Hæðatakmörkun á Breiðholtsbraut við Norðlingaholt

Verið er að byggja göngubrú milli Seláss og Norðlingaholts og því hafa verið settar
upp hæðarslár á Breiðholtsbraut í báðar áttir sunnan hringtorgs við Rauðavatn.  
Fyrst er komið að hliði með skynjurum sem setja af stað blikkljós og flautur á seinna hliðinu.  Á seinna hliðinu eru slár yfir götuna í hæð 4,35 yfir malbiki. Hámarkshraði í gegnum vinnusvæði er 30 km/klst. Hægt er að aka hjáleið um Suðurlandsveg og Norðlingabraut.

Lokun vegna eldsumbrota

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. Hægt er að sjá lokuð svæði hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Sjá staðsetningu hreindýra hér.

Akstur á hálendisvegum yfir veturinn

Hálendisvegir eru aðeins í þjónustu yfir sumarið og utan þess tíma er færð ekki könnuð. Á haustin þegar snjóað hefur til fjalla, eru vegirnir merktir ófærir í varúðarskyni þar sem miklar líkur eru á að færð hafi spillst. Yfir veturinn er akstur á hálendisvegum að jafnaði ekki óheimill, séu menn á nægilega stórum tækjum en aksturinn er á ábyrgð ökumanns. Mikilvægt er að fara ekki út í óþarfa tvísýnu og hafa í huga að víða er takmarkað símasamband.  Nú er akstur þó bannaður á ákveðnum vegum vegna eldsumbrotanna og eins er akstur á hálendisvegum bannaður á vorin þegar frost er að fara úr jörð, til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert