Maðurinn fundinn

mbl.is/Þórður

Maður á níræðisaldri sem lýst var eftir fyrr í kvöld er fundinn að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Lögreglan lýsti eftir Trausta Þórðarsyni, sem er 84 ára gamall, síðdegis í dag. Björgunarsveitir aðstoðuðu við leitina að Trausta í kvöld, m.a. í Norðlingaholti. 

Lögreglan segir að von sé á frekari tilkynningu um málið síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert