Fundu kettling í ruslageymslu

Kremaður kettlingur, orðinn dálítið horaður. Hver á hann?
Kremaður kettlingur, orðinn dálítið horaður. Hver á hann? Skjáskot af myndbandi Kattholts

Kettlingur, um fjögurra mánaða gamall, fannst í ruslageymslu við Ásbraut í Kópavogi. Hann hafði verið fastur þar inni í einhvern tíma og var orðinn dálítið horaður þegar hann fannst. Á heimasíðu Kattholts kemur fram að kötturinn sé með bjöllu en annars ómerktur. 

Hann var sársvangur þegar hann fannst og fékk langþráða máltíð í Kattholti eins og sjá má á myndbandinu sem fylgir fréttinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert