Vatn komið á í Kópavogi

Vatn í glasi og vatn í könnu.
Vatn í glasi og vatn í könnu. mbl.is/Kristinn

Vatn er komið á alls staðar í Kópavogi. Kaldavatnslögn fór í sundur í vinnu við framkvæmdir á Glaðheimasvæðinu á ellefta tímanum í morgun með þeim afleiðingum að ekkert kalt vatn var um tíma í efri hluta Smárahverfis og í Askalind og Akralind. Í Smárahverfi var komið kalt vatn um tólf en um tvö í Aska- og Akralind. Enn er unnið að viðgerð lagnarinnar en henni lýkur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert