Slökktu eld í blaðagámi

Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu klukkan rétt rúmlega 21:00 í kvöld um að eldur væri í blaðagámi við íþróttahúsið við Digranesveg. Dælubíll var sendur á staðinn og eldurinn slökktur snarlega.

Slökkviliðið vill brýna annars fyrir fólki að fara varlega með eld og skilja aldrei logandi kerti eftir án eftirlits.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert