Töluverður reykur en enginn eldur

Reykræsta þurfti íbúð í fjölbýlishúsi við Hjaltabakka í Reykjavík í hádeginu í dag eftir að pottur gleymdist á eldavél. Enginn eldur kom upp samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en töluvert mikill reykur.

Slökkviliðið brýnir annars fyrir fólki að fara varlega með eld og skilja ekki logandi kerti eftir án eftirlits.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert