Hálka, éljagangur og snjóþekja

Það er vetrarfærð um allt land.
Það er vetrarfærð um allt land. mbl.is/Ómar

Hálka og éljagangur er á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum og hálka eða snjóþekja á flestum öðrum leiðum á Suðurlandi. Þæfingsfærð  er þó á Krýsuvíkurvegi, í Grafningi og á Þingskálavegi en þungfært efst á Skeiðavegi og Landvegi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Það er hálka á velflestum vegum á Vesturlandi og einnig hálka eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum.

Á Norðurlandi, Austurlandi og Suðausturlandi er mjög víða hálka og skafrenningur á fjallvegum á norðausturhorni landsins.

Seint í kvöld gengur í hvassa N-átt með éljum og talsverðum skafrenningi um norðanvert landið. Fyrst á Vestfjörðum um kl. 21 og um og fyrir miðnætti norðan- og austanlands. Einnig snjófjúk syðra í nótt, en úrkomulaust. Verður skammvinnt og vestantil lægir með morgninum.

Siglufjarðarvegur

Vegna óvenju mikils jarðsig á Siglufjarðarvegi eru vegfarendur beðnir að gæta ýtrustu varúðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert