Þúsund króna hækkun á Stöð 2

Höfuðstöðvar 365 miðla.
Höfuðstöðvar 365 miðla. mbl.is/Ómar Óskarsson

365 miðlar hækkuðu verð á þjónustu sinni um áramótin og ætla að hækka aftur 1. febrúar næstkomandi. Verð á Stöð 2 í einn mánuð var 7.490 krónur fyrir áramót en verður 8.490 krónur eftir seinni hækkunina.

Af fleiri hækkunum má nefna svonefndan Sportpakka en sem kostaði 11.990 fyrir áramót en kostar frá 1. febrúar 13.990 krónur. Stöð2 Sport hækkar einnig um tvö þúsund krónur, úr 7.490 krónum í 9.490 krónur, en á henni hefur mátt sjá meðal annars íslenska boltann og meistaradeild Evrópu.

Verð á Bíóstöðinni stendur í stað, það hækkaði um 200 krónur í gær en mun lækka um sömu upphæð 1. febrúar næstkomandi.

Fjölvarpið hækkar einnig í verði en frá áramótum eru Eurosport og Eurosport 2 ekki lengur hluti af vöruframboði í fjölvarpspökkum.

Hér má skoða verðskrá áskriftastöðva 365 miðla

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert