Stormviðvörun frá Veðurstofunni

Það hefur snjóað á ný og hálkublettir víða á höfuðborgarsvæðinu
Það hefur snjóað á ný og hálkublettir víða á höfuðborgarsvæðinu mbl.is/Golli

Veðurstofan varar við við stormi (meira en 20 m/s) sunnantil á landinu um tíma seint í dag, en norðantil í kvöld en veður fer kólnandi.

Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og á höfuðborgarsvæðinu en hálka austur yfir Hellisheiði og Þrengsli. Hálka eða snjóþekja annars mjög víða á Suðurlandi.

Nokkur hálka er á Vesturlandi og snjóþekja á fjallvegum.

Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er verið að kanna færð á vegum og koma nánari upplýsingar fljótlega, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Veðurspáin fyrir næsta sólarhring:

Suðlæg átt 10-18 og skúrir eða él. Kólnandi veður. Suðaustan 10-18 með morgninum og slydda eða snjókoma með köflum, en heldur hægari og þurrt að mestu fyrir norðan. Suðvestan 15-23 seint í dag, hvassast sunnantil, dregur úr vindi þar í kvöld, en hvessir fyrir norðan. Víða él, en úrkomulítið norðaustantil. Suðvestan 10-15 í nótt og á morgun og dálítil él, en þurrt að mestu norðan- og austanlands. Snýst i vaxandi suðaustan átt sunnan- og vestanlands síðdegis á morgun. Hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:
Sunnan 8-13 m/s og él, en bjartviðri á N- og A-landi. Frost 0 til 7 stig. Hvessir síðdegis, suðaustan 18-23 og slydda eða rigning um kvöldið, en snjókoma NA-til. Hlýnandi veður.

Á miðvikudag:
Suðvestan 13-20 m/s. Slydda eða rigning og síðar él, en þurrt að mestu NA-til á landinu. Hiti 0 til 5 stig, en frystir allvíða um kvöldið.

Á fimmtudag:
Suðvestan 13-18 m/s og él, en léttskýjað NA- og A-lands. Frost 0 til 5 stig.

Á föstudag:
Suðvestan 8-13 m/s og él S- og V-lands, en heldur hægari vindur annars staðar og léttskýjað. Frost 1 til 10 stig, mest í innsveitum fyrir norðan og austan.

Á laugardag:
Norðvestan og vestan 3-8 m/s og stöku él, en úrkomulaust á SA-landi og Austfjörðum. Talsvert frost.

Á sunnudag:
Líkur á vaxandi suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert