„Mistök“ og skipun dregin til baka

Borgarstjórn Reykjavíkur.
Borgarstjórn Reykjavíkur. mbl.is/Árni Sæberg

Borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina hafa ákveðið að draga til baka skipan Gústafs Adolfs Níelssonar, varafulltrúa síns í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar. Kosning Gústafs hefur vakið mjög hörð viðbrögð innan Framsóknarflokksins og víðar.

„Stefna Framsóknarflokksins og flugvallarvina er skýr,“ segir í fréttatilkynningu.

„Við berjumst fyrir mannréttindum, virðingu fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni. Við höfnum hvers konar mismunun sem gerir greinarmun á fólki t.d. eftir kynþætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum. Við munum ávallt verja skoðana- og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og friðhelgi einkalífs.

Skipun varamanns í mannréttindaráð Reykjavíkurborgar í gær er ekki í samræmi við stefnu Framsóknarflokksins og voru því mistök af okkar hálfu.“

Gústaf sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að oddviti Framsóknar og flugvallarvina hefði haft samband við sig í desember og beðið hann að taka þetta að sér. „Þetta kom mér svo­lítið í opna skjöldu því ég er ekki í Fram­sókn­ar­flokkn­um held­ur Sjálf­stæðis­flokkn­um,“ seg­ir Gúst­af Ad­olf og bæt­ir við að odd­vit­an­um hafi hins veg­ar þótt mikið koma til skrifa hans í Morg­un­blaðinu að und­an­förnu og því sett sig í sam­band við hann.

Greta Björg Egilsdóttir tekur sæti varamanns í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert