Bifreið sat föst ofan á vegriði á Reykjanesbraut

Fjölmörg umferðaróhöpp urðu í hálkunni á Reykjanesbraut í vikunni.
Fjölmörg umferðaróhöpp urðu í hálkunni á Reykjanesbraut í vikunni. Ljósmynd/Ólafur Guðmundsson

Allmörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að hún lenti milli akreina og hafnaði ofan á vegriði þar sem hún sat föst.

Fjarlægja þurfti hana með dráttarbifreið. Annar ökumaður ók á ljósastaur í Keflavík. Þá var olíuflutningabifreið ekið á girðingu við öryggishlið við Keflavíkurflugvöll. Loks ók ökumaður á grindverk við hafnarbakka Keflavíkurhafnar. Þá urðu fáeinir minni háttar árekstrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert