Viðvarandi glannaakstur á Þingvallavegi

Íbúar í Mosfellsdal hafa mótmælt harðlega hraðaakstri í gegnum Dalinn.
Íbúar í Mosfellsdal hafa mótmælt harðlega hraðaakstri í gegnum Dalinn. mbl.is/Ómar Óskarsson

Íbúar Mosfellsdals ætla að afhenda Bryndísi Haraldsdóttur, formanni skipulagsnefndar, mótmælabréf klukkan 12 í dag.

Tilefnið er „viðvarandi hrað- og glannakstur á Þingvallavegi í Mosfellsdal, sem skerðir lífsgæði allra í Dalnum og skapar viðvarandi hættuástand á veginum,“ segir í fréttatilkynningu.

Dalsbúar mótmæla einnig „óþarflega breiðu veghelgunarsvæði Vegagerðarinnar sem  skerðir eignarétt landeigenda og takmarkar ráðstöfunarrétt þeirra yfir landi sínu.“

Dalsbúar vilja að Vegagerðin finni sér aðra stofnbraut sem fyrst til þess að taka við vaxandi umferðarþunga sem fer núna í gegnum Mosfellsdal og að þessi  vegur verði  gerður að sveita- og hverfisvegi og að veghelgunin verði minnkuð í 15 metra frá miðlínu vegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert