Nóg að gera hjá björgunarsveitum

Björgunarsveitir hafa lagt hönd á plóg í dag vegna veðursins.
Björgunarsveitir hafa lagt hönd á plóg í dag vegna veðursins. mbl.is/Eggert

Nokkuð hefur verið um útköll björgunarsveita í dag vegna veðurs. Fyrsta útkallið barst um klukkan 10.30 í morgun á Drangsnesi. Þar flæddi bæjarlækurinn yfir bakka sína eftir að ræsi sem á að taka við honum stíflaðist með þeim afleiðingum að mikið vatn rann inn í kjallara frystihússins á staðnum.

Tókst björgunarsveitinni, með góðri samvinnu við Vegagerðina sem sendi gröfu á staðinn, að leysa málið.

Um klukkustund síðar var björgunarsveitin Strönd á Skagaströnd fengin til að tryggja 15 t bát er var að losna frá bryggju.

Í hádeginu var svo þörf fyrir hjálpfúsar hendur í vatnselgnum á Ísafirði. Þar hefur björgunarsveitin aðstoðað bæjarstarfsmenn og slökkvilið við að ná tökum á ástandinu. Síðdegis bættust svo meðlimir Ernis í Bolungarvík í hópinn með dælur.

Ísafjörður er þó ekki eini staðurinn á Vestfjörðum þar sem vatnið hefur gert usla. Eftir hádegi var björgunarsveitin á Suðureyri kölluð út eftir að flæða fór inn í hús í bænum.

Þegar hún var að ljúka því verki barst tilkynning um að farið væri að flæða inn í kjallara Sunnuhlíðar, sem er verslunarhúsnæði á Suðureyri. Dælingu þar lauk um klukkan 16.00. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert