Vindur að ganga niður

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Kristinn

Vindur er smám saman að ganga niður á landinu, þó að varhugaverðir sviptivindar leynist enn á stöku stað á Vestfjörðum, Norðurlandi og eins suðaustanlands.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir að það kólni, einkum vestantil, og frysti á fjallvegum og eins í byggð á Vestfjörðum. Von er á lægðabylgju síðdegis úr suðvestri og með henni hvessir aftur. Hríðarveður verður víðast ofan 100 til 200 metra um landið vestanvert, en slydda eða bleytusnjór á láglendi.

Djúpvegur nr. 61 rétt fyrir sunnan Hólmavík, við Skeljavík, er nú lokaður þar sem vegurinn er í sundur. Sami vegur er líka í sundur yst í Staðardalnum, við gatnamót Djúpvegar og Drangsnesvegar.

Áætlað er að viðgerð ljúki um klukkan 18 og umferð þá hleypt á í framhaldi af því.

Vegir á Suður- og Vesturlandi eru að mestu greiðfærir þó eru komnir hálkublettir á Hellisheiðina.

Á Vestfjörðum er hálka og éljagangur og eitthvað um hálkubletti. Snjóþekja og éljagangur er á Þröskuldum en hálka og skafrenningur á Gemlufallsheiði. Óveður og hálka er á Mikladal og Hálfdáni.

Vegur 61 við Skeljavík, rétt sunnan við Hólmavík, er lokaður þar sem stórt skarð hefur myndast í veginn og er reiknað með að viðgerð geti tekið töluverðan tíma.

Á Vesturlandi er hálka á Bröttubrekku.

Vegir eru víða greiðfærir á Norðurlandi en þó er eitthvað um hálkubletti. Hálka og éljagangur er á Öxnadalsheiði en óveður á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi er víða orðið greiðfært en þó eru enn hálkublettir á stöku stað. Greiðfært er einnig að mestu með suðausturströndinni en óveður er á Hvalnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert