365 í samstarf við Belging

365 og Belgingur hefja samstarf.
365 og Belgingur hefja samstarf. mbl.is/Ómar Óskarsson

365 og veðurfyrirtækið Belgingur hafa skrifað undir samning um að þeir síðarnefndu sjái um veðurfréttir á Stöð 2, í Fréttablaðinu og á visir.is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365. Veðurfréttamönnum á fréttastofu 365 hefur verið sagt upp störfum.

„Nýja fyrirkomulagið sem felur í sér ýmsar nýjungar verður tekið upp á næstu vikum. Um er að ræða öflugri veðurþjónustu og betri framsetningu en verið hefur,“ segir í tilkynningunni.

Þar er haft eftir Ólafi Rögnvaldssyni, veðurfræðingi, framkvæmdastjóra og stofnanda Belgings, að um sé að ræða spennandi vernefni.
 
„Í okkar veðurgrunni notum við bæði upplýsingar frá evrópsku og bandarísku reiknimiðstöðinni, svo okkar spár ættu að vera ansi raunverulegar og nákvæmar. Auk þess er gaman að fá tækifæri til þess að nota alla miðla til að koma upplýsingum okkar á framfæri,“ segir Ólafur.
 
„Við hlökkum til samstarfsins, en fyrst og fremst er þetta betri þjónusta við lesendur okkar, hlustendur og áhorfendur,“ er haft eftir Kristínu Þorsteinsdóttur, aðalritstjóra 365.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert