Snjóflóðahætta á Siglufjarðarvegi

Siglufjörður
Siglufjörður mbl.is/Sigurður Ægisson

Enn er snjóflóðahætta á Siglufjarðarvegi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og vegurinn lokaður utan Fljóta. Með versnandi veðri síðar í dag má búast við því að mjög blint verði og dimm ofanhríð á veginum austur fyrir fjall frá því um hádegi og þar til skil lægðarinnar verða farin yfir á milli kl. 17 og 18.  Þá er reiknað með hviðum 30-40 m/s undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi á frá því laust fyrir hádegi og þar til síðdegis, að því er haft er eftir veðurfræðingi í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Það er hálka á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir eru allvíða á Suðurlandi.

Á Vesturlandi eru hálkublettir en hálka á fjallvegum og í Svínadal. Þæfingur og skafrenningur er á Fróðárheiði. Hálka eða snjóþekja er nánast á öllum á vegum á Vestfjörðum, þó aðeins hálkublettir á Innstrandavegi.

Á Norðurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum og éljagangur og skafrenningur nokkuð víða. Þæfingsfærð er á Tjörnesi og í Bakkafirði en ófært á Hólasandi og Hófaskarði. 

Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði. Annars er hálka eða hálkublettir á vegum á Austurlandi. Greiðfært er frá Breiðdalsvík með suðausturströndinni vestur undir Öræfi en þar tekur við hálka og hálkublettir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert