Vatnstjón víða

Það er mikið að gera hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins enda asahláka. Verið er að dæla upp vatni á nokkrum stöðum, þar á meðal í húsum í Mosfellsdal og Kópavogi.

Slökkviliðið vill beina þeim tilmælum til fólks að huga að niðurföllum við hús sín þar sem snjórinn bráðnar hratt í þíðunni.

Eins er mikið annríki í sjúkraflutningum, meðal annars við að flytja sjúklinga út á land vegna þess að Landspítalinn er yfirfullur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert