Mikill viðbúnaður við Sæbraut

Mikill viðbúnaður var við Sæbraut.
Mikill viðbúnaður var við Sæbraut. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögregla og slökkvilið voru með mikinn viðbúnað við Sólfarið við Sæbraut fyrr í morgun. Fréttamaður mbl.is á staðnum greindi þar þrjá til fjóra lögreglubíla, þrjá slökkvibíla, sjúkrabíl og ómerkta bíla.

Lögregla verst allra fregna en sjá mátti sjúkraflutningamenn með börur á svæðinu fyrr í dag.

Samkvæmt heimildum mbl.is virðist sem aðgerðum sé að hluta til lokið á svæðinu.

Uppfært 10:34

Samkvæmt heimildum mbl.is barst lögreglu tilkynning um sjórekið lík fyrr í morgun. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Rúmlega tíu bílar voru á svæðinu.
Rúmlega tíu bílar voru á svæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert