Vildi þjóðaratkvæði um ESB

Karl Garðarsson alþingismaður.
Karl Garðarsson alþingismaður. mbl.is

„Ég er þeirrar skoðunar að rétt sé að spyrja þjóðina um hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið. Það eru skiptar skoðanir um málið, eins og kannanir hafa leitt í ljós.“

Þetta segir Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á vefsíðu sinni í dag. Hins vegar sé ekki hægt að ætlast til þess að ríksstjórn andstæð inngöngu í Evrópusambandið haldi viðræðunum áfram. Slík atkvæðagreiðsla gæti þannig aldrei orðið fyrr í fyrsta lagi við lok kjörtímabilsins. 

„Þetta er bjargföst skoðun mín. Þegar kom að framhaldi málsins varð önnur skoðun ofan á. Ég virði þá niðurstöðu þó ég sé ekki sammála henni. Að þessu sögðu vil ég taka skýrt fram að ég er á móti aðild að Evrópusambandinu eins og staðan er í dag. Staða sambandsins er slík og óvissan mikil um framtíð þess að aðild væri ekki skynsamleg fyrr en mál færu að skýrast. Kannski verð ég kominn á aðra skoðun varðandi aðild eftir fimm eða tíu ár. Ómögulegt að segja.“

Karl segir að ákvarðanir þingmanna eigi ennfremur ekki að binda þá sem erfi landið um alla framtíð. „Ef börn okkar og barnabörn telja hag sínum best borgið með aðild að Evrópusambandinu, þá mun ég að sjálfsögðu virða þá ákvörðun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert