Grunur um salmonellusmit

Kominn er upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna, segir í fréttatilkynningu frá Matfugli.

Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu 011-15-11-5-33 og 011-15-11-7-12

Dreifing á afurðum hefur verið stöðvuð og í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins er unnið að innköllun vörunar.

Neytendur sem keypt hafa kjúkling með þessu rekjanleikanúmeri eru beðnir um að skila honum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.

„Til að varast óróleika hjá neytendum skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklinga, sem finna má á umbúðum, steiki kjúklinginn í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra matvöru,“ segir í fréttatilkynningunni.

Innköllunin á eingöngu við um kjúkling með þessu tiltekna rekjanleikanúmeri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert