Rannsókn á andláti í Hveragerði ólokið

Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti manns sem fannst látinn í herbergi sínu á Hótel Örk í Hveragerði fyrr í þessum mánuði er ólokið. Enn er beðið eftir niðurstöðu krufningar og gerir lögregla ráð fyrir að enn verði nokkur bið eftir skýrslunni.

Karlmaðurinn var íslenskur og á sextugsaldri. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti. Áður hefur komið fram að í ljós hafi komið innvortis áverkar við krufningu mannsins.

Frétt mbl.is: Hinn látni var á sextugsaldri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert