„Maður er ansi lítill í þessu umhverfi“

Vilborg Arna með tind Everest í baksýn.
Vilborg Arna með tind Everest í baksýn. Ljósmynd/Vilborg Arna

Í dag er komið að tímamótum í göngu Vilborgar Örnu Gissurardóttur á Everest-fjall. Síðustu daga hefur hún dvalið í grunnbúðum við æfingar. Í dag hefur hún aðlögunarferð upp í fyrstu búðir. Þar mun hún dvelja í tvær nætur til að aðlagast nýrri hæð og undirbúa sig fyrir næstu búðir. „Um leið og maður er kominn yfir 6.000 m fer verulega að reyna á andlega og líkamlega,“ segir Vilborg. „Matarlystin minnkar og kroppurinn sömuleiðis undan álaginu. [...] Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni sem einn af áföngunum við að klífa fjallið.“

Enn eru um 4 vikur þar til Vilborg mun reyna við toppinn, „svo það er enn langt í land,skrifar Vilborg á bloggsíðu sína.

Hér má lesa bloggfærsluna í heild:

Síðustu dagar hér í town Base camp hafa verið góðir. Sólin hefur verið hátt á loftið og við stundað æfingarnar okkar af krafti. Í gær fórum við aftur upp í ísfallið og nú lengra en síðast. Magnað að fara þarna í gegn, það er gengið á snjóbrúm, stokkið yfir sprungur og farið á álstigum yfir þær risa stóru, eins er þetta nokkuð bratt á köflum með tilheyrandi brölti. Við erum auðvitað í línum og notum allan tiltækan öryggisbúnað. Þetta er stórkostlegt og ógnvekjandi í senn.

Maður er ansi lítill í þessu umhverfi og farið er eftir leikreglum náttúrunnar. Hópurinn minn er góður og klár á sínu, þess vegna getum við ferðast nokkuð hratt yfir. Á morgun er komið að tímamótum í leiðangrinum er við leggjum af stað í fyrstu aðlögunarferðina. Við byrjum á að ganga upp í fyrstu búðir, 5.900 m, og áætlað er að ferðalagið taki á bilinu 6-8 klst. Þar verðum við í tvær nætur til að aðlagast nýrri hæð og undirbúa okkur fyrir búðir tvö. Gangan þangað tekur 4-5 klst. og þá munum við dvelja í 6.400 m í 5 daga. Um leið og maður er kominn yfir 6.000 m fer verulega að reyna á andlega og líkamlega. Matarlystin minnkar og kroppurinn sömuleiðis undan álaginu. Við munum fara upp að Lhotse-hlíðinni og kynnast henni áður en við tökumst á við hana í annarri umferð. Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni sem einn af áföngunum við að klífa fjallið. Það eru enn um 4 vikur þar til við reynum við toppinn svo það er enn langt í land. Ég hitti Íslandsvininn og fjallahetjuna David Breashers við ísfallið í gær. Hann var ánægður með heimsóknina og móttökurnar í Hörpu í síðasta mánuði. Það er lítið um net í efri hlíðum Everest en Tommi minn mun fylgjast með og fá fréttir sem hann flytur áfram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert