Sóttu loks um vegna dýravelferðar

Áður hafði ekki verið óskað eftir undanþágu til slátrunar vegna …
Áður hafði ekki verið óskað eftir undanþágu til slátrunar vegna dýravelferðar. mbl.is/Kristján Kristjánsson

Undanþágunefnd Dýralæknafélags Íslands samþykkti í gær mjög takmarkaða slátrun á kjúklingum frá búum þar sem dýravelferðarþættir voru komnir að hættumörkum. Um er að ræða 50.000 kjúklinga og tæplega 1.000 kalkúna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bandalagi háskólamanna (BHM).  

Beiðnin barst síðdegis en áður hafði ekki verið óskað eftir undanþágu til slátrunar vegna dýravelferðar. Áður hafði nefndin veitt undanþágu m.a. vegna innflutnings á brjóstamjólk fyrir fyrirbura og nýbura hér á landi.

Frétt mbl.is: Slátrun kemur í veg fyrir dráp

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert