Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur en þar fer fram málflutningur í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings.
Um er að ræða níunda dag aðalmeðferðar í málinu en Hreiðar Már afplánar nú fimm og hálfs árs fangelsisdóm á Kvíabryggju en hann var sakfelldur í Hæstarétti í febrúar í í Al Thani-málinu svokallaða.