Verkföll geta knúið bú í gjaldþrot

Staðan er alvarlegust í alifugla- og svínarækt að sögn samtakanna.
Staðan er alvarlegust í alifugla- og svínarækt að sögn samtakanna. mbl.is/Sverrir

Stjórn Bændasamtaka Íslands segja ástandið sem komið sé upp í íslenskum landbúnaði sé grafalvarlegt vegna vinnudeilu BHM og ríkisins. Samtökin segja að staðan sé alvarlegust í alifugla- og svínarækt. Samtökin krefja stjórnvöld um að grípa þegar í stað til aðgerða vegna neyðarástandsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Bændasamtakanna. 

Þar segir að stjórnin hafi fundað í dag vegna þess grafalvarlega ástands sem upp sé komið í íslenskum landbúnaði vegna vinnudeilu BHM og ríkisins.

„Staðan er alvarlegust í alifugla- og svínarækt þar sem að engin heilbrigðiskoðun getur átt sér stað á meðan verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun stendur yfir. Vegna þessa er velferð dýranna ógnað þar sem að þéttleiki í eldishúsum er kominn yfir leyfileg mörk. Þá hefur lausafjárstaða búanna versnað hratt, þar sem þau koma ekki kjöti á markað sem aftur dregur fljótt úr getu þeirra til að kaupa fóður og önnur nauðsynleg aðföng til að sinna dýrunum. Verkfallið getur hreinlega knúið sum þeirra í gjaldþrot og valdið mikilli röskun á kjötframleiðslu í landinu, langt umfram þann tíma sem verkfallið sjálft mun standa. 

Af þessu tilefni sendu Bændasamtökin í dag bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þar sem hinu grafalvarlega ástandi er lýst og aðgerða krafist strax vegna þessa neyðarástands. Samtökin leggja þunga áherslu á að ráðherra geri allt sem í hans valdi stendur til að stuðla að lausn deilunnar enda ber hann ábyrgð á framkvæmd laga um velferð dýra.

Þá hefur fulltrúi Bændasamtakanna í fagráði um velferð dýra farið fram á að ráðið verði nú þegar kallað saman til að fjalla um um þessa alvarlegu stöðu.  Ráðið starfar samkvæmt lögum um velferð dýra og er meðal annars ætlað að að fylgjast með þróun dýravelferðarmála og upplýsa Matvælastofnun um mikilvæg málefni á sviði velferðar dýra,“ segir stjórn Bændasamtaka Íslands. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert