Varpar ljósi á alvarlega vanda

„Kvikmyndahúsið Bíó Paradís hefur efnt til einnar stærstu hópsöfnunar á netinu þar sem stefnt er að því að safna um 4,5 milljónum króna. til að bæta aðgengi að sýningarsölum og salernum hússins. Þetta er metnaðarfullt verkefni en ætti um leið að vekja okkur hjá fjárveitingavaldinu til umhugsunar um stöðu aðgengismála í samfélaginu.“

Þetta sagði Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins. Lagði hún áherslu á að aðgengi fatlaðs fólks að öllum sviðum samfélagsins væri mannréttindamál eins og allir ættu að vera farnir að þekkja. Vísaði hún til sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í því sambandi.

„Við viljum að allir geti notið menningar, heimsótt veitingastaði og verslað í búðum óháð skerðingum. Við sem löggjafi höfum freistað þess að tryggja þetta aðgengi með byggingarreglugerðum þótt reyndar hafi allt of oft heyrst sú popúlíska krafa að víkja beri frá þeim til að tryggja skammtímasparnað við byggingu á nýju húsnæði,“ sagði hún. Þannig næðu byggingareglugerðir aðeins til nýbygginga. Hús væru hins vegar byggð til áratuga.

„Söfnun Bíós Paradísar varpar ljósi á þann vanda sem eigendur eða rekstraraðilar eldra húsnæðis standa frammi fyrir. Þeim ber engin skylda til að gera húsnæðið aðgengilegt en hafi þeir metnað til að bæta aðgengi er kostnaðurinn alfarið þeirra því að fáir eða engir sjóðir eru til sem hægt er að leita í vegna slíkra samfélagslegra verkefna sem ég vil kalla svo. Ef við viljum í raun eitt samfélag fyrir alla þyrfti með samstarfi bæði ríkissjóðs og sveitarfélaga að koma slíkum sjóðum á laggirnar.“

Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður.
Steinunn Þóra Árnadóttir alþingismaður.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert