Til Færeyja með slasaðan sjómann

Þórshöfn í Færeyjum.
Þórshöfn í Færeyjum. Ljósmynd/Sigurður Bogi Sævarsson

Fiskveiðiskipið Kap VE er þessa stundina á leið til Færeyja með slasaðan sjómann um borð.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var skipið að veiðum suðvestur af Færeyjum þegar óhapp varð í morgun um borð og var í kjölfarið ákveðið að sigla til lands eftir að haft hafði verið samráð við lækni Gæslunnar.

Sjómaðurinn er ekki lífshættulega slasaður samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert