Telur tillöguna ekki standast lög

Landvernd boðar til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík á morgun klukkan 16:30 í tengslum við umræður á Alþingi um tillögu meirihluta atvinnuveganefndar um að færa fjórar virkjanir til viðbótar í virkjanaflokk rammaáætlunar. Landvernd segir það vera gert án þess að nægilega faglega hafi verið staðið að málum. Um er að ræða virkjanir í neðrihluta Þjórsár og upp á hálendinu sjálfu, við Skrokköldu á Sprengisandi og Hagavatn sunnan Langjökuls.

„Rammaáætlun fjallar um hvar megi virkja og hvar ekki. Virkjanahugmyndirnar hafa ekki hlotið fullnægjandi málsmeðferð sem lög mæla fyrir. Lög um rammaáætlun gera ráð fyrir að faghópar meti verðmæti svæða og áhrif virkjana á þau, gefi þeim stig og raði þeim eftir verðmætum á þessum forsendum. Vorið 2013 tók ný verkefnisstjórn rammaáætlunar til starfa og vinnur nú að 3. áfanga áætlunarinnar. Í endurskoðun hennar á flokkun virkjanahugmynda í neðrihluta Þjórsár var engri stigagjöf beitt og enginn samanburður fékkst við aðrar virkjanahugmyndir,“ segir í fréttatilkynningu.

Faghópar hafi ekki enn metið Skrokköldu- og Hagavatnsvirkjun í núverandi áfanga segir ennfremur í tilkynningunni en vinnu þeirra beri hins vegar lögum samkvæmt að leggja til grundvallar mati verkefnisstjórnar á hverjum tíma. Landvernd telji Alþingi ekki geta fært virkjanahugmyndir til með þessum hætti án þess að þessi vinna hafi farið fram. Því efist samtökin um að tillaga meirihluta atvinnuveganefndar standist lög.

„Burtséð frá lagalegum atriðum er ljóst að verði tillaga meirihluta atvinnuveganefndar að veruleika felur það í sér alvarlegt rof á tilraun til sátta um orkunýtingu í landinu. Rammaáætlun verður gerð að ónýtu verkfæri. Aðeins eitt ár er í að niðurstöður verkefnisstjórnar núverandi rammaáætlunar liggja fyrir, þar sem hægt yrði að taka ofangreindar virkjanahugmyndir til greina. Landvernd telur nær að bíða þeirrar niðurstöður í stað þess að efna til þessa ófriðar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert