Kjötfjall bíður í frystinum

Svínakjöt er geymt í tonnavís í frysti.
Svínakjöt er geymt í tonnavís í frysti. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Um 1.400 tonn af svína- og alifuglakjöti hafa ekki komist á markað síðustu vikur vegna verkfalls dýralækna og eru því geymd í frosti. Bændasamtökin benda á þetta í kjölfar frétta um að 200 tonn af innfluttu kjöti bíði tollafgreiðslu.

 „Kjötið er geymt í frosti þar sem ekki hafa fengist undanþágur frá verkfalli til slátrunar nema með skilyrðum um að setja vörur á frost. Magn innlends kjöts í frystigeymslum er því sjöfalt meira í tonnum talið en þess erlenda kjöts sem bíður tollafgreiðslu. Slík birgðasöfnun mun leiða til fjárhagslegs tjóns fyrir bændur löngu eftir að verkfalli lýkur,“ segir í tilkynningu frá Bændasamtökunum.

Frá því að verkfall dýralækna hófst þann 20. apríl hafa innlendir alifuglabændur og svínabændur ekki fengið tekjur af framleiðslu sinni. „Fjárhagsstaða margra búa er því orðin verulega erfið sem hefur áhrif á möguleika þeirra til að kaupa fóður og aðföng til að sinna dýrunum, sem og að framleyta sér og fjölskyldum sínum. Ljúki verkfalli ekki brátt mun fjöldi búa standa frammi fyrir gjaldþroti.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert