Um 500 manns á fundi BHM

Fjölmennt var á fundi stjórnar BHM með félagsmönnum í Rúgbrauðsgerðinni …
Fjölmennt var á fundi stjórnar BHM með félagsmönnum í Rúgbrauðsgerðinni í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Félagar í Bandalagi háskólamanna sitja nú á fjölmennum barátt fundi í Rúgbrauðsgerðinni. Setið er í hverju sæti og þurfa margir að standa. Talið er að um 500 manns séu á staðnum.

Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeildu BHM og ríkisins síðar í dag. Eftir síðasta fund sem fór fram í kjaradeildunni sendi BHM þau skilaboð að ekki yrði fundað á ný fyrr en ríkið hefði eitthvað nýtt fram að færa.

Sagðist Páll Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, ekki vita hvað ríkið hefði fram að færa á fundinum sem ráðgerður er síðdegis eða kl. 15.

Á baráttufundinum færði Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, BHM 15 milljónir króna úr vinnudeilusjóði félagsins.

Árni Stefán las upp og afhenti síðan Þórunni Sveinbjarnardóttur formanni BHM bréf þar sem SFR lýsir yfir stuðningi við bandalagið í þeirri „harkalegu kjarabaráttu sem nú stendur yfir,“ segir í frétt frá SFR um málið.

Nokkur hundruð félagsmenn BHM voru á fundinum og fögnuðu orðum Árna Stefáns ákaft og Þórunn þakkaði fyrir þann kærkomna peningastuðning sem þarna var veittur og þeim mikla samhug sem honum fylgir.

Bréf Árna sem hann las upp á fundinum í heild:

Sú alvarlega staða sem komin er upp á vinnumarkaði kallar á ríka samstöðu stéttarfélaga og bandalaga. Ríkisvaldið og Samtök atvinnulífsins hafa sýnt af sér fádæma getuleysi í að koma fram með trúverðugum hætti í yfirstandandi kjaraviðræðum. Í þessari stöðu þarf launafólk að standa saman.

SFR stéttarfélag í almannaþjónustu styður félaga sína innan BHM sem hafa staðið í harkalegri kjarabaráttu undanfarnar vikur.

 Eitt af meginhlutverkum stéttarfélaga er að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna og nú er staðan sú í kjarasamningsviðræðum að nauðsynlegt hefur verið að grípa til aðgerða. Kjör og réttindi launafólks eru í húfi. Í slíkum aðstæðum er samstaðan mikilvæg, ekki bara samstaða innan félaga og aðildarsamtaka heldur einnig milli stéttarfélaga sem standa í svipuðum sporum. Aðgerðum eins og þeim sem BHM stendur nú í fylgir mikill kostnaður auk álags og óvissu fyrir félagsmenn.

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Vinnudeilusjóður félagsins hefur í ljósi þessa ákveðið að færa BHM 15.000.000.- til að styrkja bandalagið í þeim hörðu átökum sem nú standa yfir.

SFR vill með þessu sýna samhug sinn í verki og styðja þannig við félagsmenn BHM og þá kjarabaráttu sem þeir nú standa í.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, og Ánrni Stefán Jónsson, formaður SFR.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, og Ánrni Stefán Jónsson, formaður SFR. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert