Verkföll hafa áhrif á akstur Strætó

mbl.is/Ómar

Einstaka ferðir Strætó munu falla niður á landsbyggðinni vegna verkfalla sem Starfsgreinasambandið hefur boðað til dagana 28. og 29. maí og 1. júní nk.

Fram kemur í tilkynningu, að komi til boðaðra verkfalla falli niður ferðir á eftirtöldum leiðum Strætó á verkfallsdögum: 

  • Allar ferðir á leiðum 51,56,59,72,73,74, 75,78 og 79
  • Leið 52 fellur niður kl 10:00 frá Mjódd og kl 12:35 frá Landeyjarhöfn
  • Flestar ferðir á leið 57. 

Nánar á heimasíðu Strætó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert