Sumt virðist ásættanlegt

„Að einhverju leyti virðist niðurstaðan vera í samræmi við það sem lagt var upp með af hálfu ákæruvaldsins,“ sagði Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, saksóknari, inntur eftir því hvort hann væri sáttur eða ósáttur við niðurstöðu Héraðsdóms í Kaupþingsmálinu sem kveðinn var upp fyrr í dag.

Þó tekur hann skýrt fram að annað í dómnum sé ekki ásættanlegt.

mbl.is ræddi við Hólmstein.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert