17 ára ók á 150 km hraða

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi ökumann fyrir of hraðan akstur. Hann mældist á 150 kílómetra hraða er hann ók Miklubrautina til vesturs. Ökumaðurinn, sem er sautján ára gamall, hefur verið með ökuréttindi í mánuð.

Laust eftir klukkan eitt í nótt fékk lögreglan tilkynningu um mjög ölvaða og vímaða konu, sem var með hávaða og læti, í Grafarholti. Hún neitaði að fara að fyrirmælum lögreglu og var handtekin og vistuð í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert