Gerðardómur skipaður

mbl.is/Styrmir Kári

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur skipað þau Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmann, Ástu Dís Óladóttur framkvæmdastjóra og Stefán Svavarsson endurskoðanda í gerðardóm sem ákvarða á kjör félagsmanna BHM.

Þessir þrír gerðardómarar eru tilnefndir af Hæstarétti og staðfestir af ráðuneytinu. Hefur gerðardómurinn fengið frest til 15. ágúst til þess að komast að niðurstöðu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert