Sautján ára stúlka sem slasaðist alvarlega í bílslysi við Seyðisfjörð í síðustu viku hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild Landspítalans og flutt á Barnaspítala Hringsins.
Stúlkan var ökumaður í bíl sem valt með þeim afleiðingum að kona á tuttugasta og fyrsta aldursári lést.
Maður sem slasaðist alvarlega á miðvikudagskvöldið í bílveltu á Suðurlandsvegi, skammt vestan við Kistufell í Vestur-Skaftafellssýslu, verður útskrifaður af gjörgæslu í dag. Þaðan verður hann fluttur á almenna deild Landspítalans.
Fyrri fréttir mbl.is:
Fluttur alvarlega slasaður með þyrlu