Líðan stúlkunnar er óbreytt

mbl.is/Ómar

Líðan 17 ára stúlkunnar sem slasaðist í bílveltu á Seyðisfirði á þriðjudagskvöld er enn óbreytt. Henni er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans.

Stúlkan var ökumaður í bíl sem valt með þeim afleiðingum að kona á tuttugasta og fyrsta aldursári lést. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert