Íbúar landsins yfir 330 þúsund

Á höfuðborgarsvæðinu búa 212.120 manns en alls eru landsmenn 330.610 …
Á höfuðborgarsvæðinu búa 212.120 manns en alls eru landsmenn 330.610 talsins. mbl.is/Rósa Braga

Í lok 2. ársfjórðungs 2015 bjuggu 330.610 manns á Íslandi, 166.170 karlar og 164.440 konur. Landsmönnum fjölgaði um 870 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 25.090 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 212.120 manns.
 
 Í byrjun apríl bjuggu 329.740 manns á Íslandi. Á 2. ársfjórðungi 2015 fæddust 1.050 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 350 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 470 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu, samkvæmt Hagstofu Íslands.

Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 480 íslenskir ríkisborgarar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns.
 
Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (140), Noregi (120) og Svíþjóð (100), samtals 360 manns af 550. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.050 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert