Miklu meiri hækkanir en vænta mátti

Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda.
Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda.

Sigurður Loftsson, formaður Landssambands kúabænda, spyr Finn Árnason, forstjóra Haga, hvort hækkun vöruverðs í verslunum fyrirtækisins sé ekki umfram það sem vænta mátti vegna hækkunar á heildsöluverði mjólkurafurða. Í leiðara á naut.is skrifa Sigurður:

„Finnur Árnason, forstjóri almenningshlutafélagsins Haga sem m.a. rekur verslanakeðjurnar Hagkaup og Bónus, skorar í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag, 27. júlí 2015, á stjórnvöld að endurskoða hækkun á mjólkurafurðum sem ákveðin var nýlega.“

Í greininni segir hann Finn fara yfir stöðuna á vinnumarkaði, verðlagsþróun, áhrif nýgerðra kjarasamninga þar á og segir m.a.: „Því skiptir miklu að aðhalds sé gætt í verðlagsmálum og verðbólgu haldið í skefjum. Þar sem kostnaðarauki á fyrri hluta samningsins er meiri, skapar það aukna hættu á þrýstingi á verðlag. Fyrstu 12-18 mánuðir samningstímans eru viðkvæmir og skipta sköpum. Hver ákvörðun fyrirtækja og stjórnvalda skiptir því miklu, því einungis ábyrg ákvörðunartaka mun skila kaupmáttaraukningu“, skrifar Sigurður.

Hann segir að í nýlegri verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands hafi komið fram „að á sama tíma og heildsöluverð mjólkurafurða stóð í stað, hafa mjólkurvörur hækkað einna mest í verslunum Haga; 6,9% í Hagkaup og 5,4% í Bónus. Þetta eru miklu meiri hækkanir en vænta mátti í kjölfar breytinga á virðisaukaskatti og afnámi sykurskatts.“

Sigurður bendir einnig á að í nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segi að á árabilinu 2003-2013 hækkuðu mjólkurafurðir miklu minna en almennt verðlag hér á landi. Því til viðbótar hafi heildsöluverð mjólkurafurða verið óbreytt síðan 1. október 2013.

„Afkoma Haga hf. er góð, eins og ráða má af ársreikningi og árshlutauppgjöri félagsins,“ skrifar Sigurður. „Á síðasta reikningsári var hagnaður þess 3.838 milljónir króna, eða rétt 5% af veltu. Þegar keyptur er varningur að andvirði 5.000 kr í verslunum félagsins, fær það að jafnaði 250 kr í hreinan hagnað af þeim viðskiptum.

Finnur Árnason telur ákvörðun Verðlagsnefndar búvara óábyrga og vanhugsaða. Tímasetningin er ómöguleg. Hvað segir Finnur Árnason um 5-7% verðhækkanir á mjólkurafurðum, þegar tilefnið var 2,5%? Hversu ábyrgar voru þær ákvarðanir? Skipti tímasetning þeirra engu máli í þessu samhengi? Fyrir hvern var sú hækkun gerð?“

Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Finnur Árnason, forstjóri Haga. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert