Gasblöðrur ógnuðu flugöryggi

mbl.is/ Ernir Eyjólfsson

Dularfullar gasblöðrur eru nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þær birtust í aðflugsstefnu flugvélar sem var að koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli hádegi í dag. Ekki varð árekstur við atvikið en ekki mátti miklu muna og er atvikið tekið mjög alvarlega.

Svo virðist sem blöðrunum hafi verið sleppt í miðbæ Reykjavíkur, mögulega við Hljómskálagarð. Voru blöðrurnar tölvuvert stórar og virtist sívalningur hanga í þeim.

„Við biðjum alla sem hafa upplýsingar sem geta varpað ljósi á atvik að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, en það er hægt að gera gegnum símann 444-1000, netfangið hakon@lrh.is eða einkaskilaboð gegnum fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í Facebook færslu lögreglu um málið.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál þar sem stórar gasblöðrur birtust í aðflugsstefnu flugvélar sem var að koma...

Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Wednesday, July 29, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert