Hiti úr Golfstraumnum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

HS Veitur hafa boðið út kaup og uppsetningu varmadælu fyrir hitaveituna í Vestmannaeyjum. Er þetta framkvæmd upp á milljarð og yrði fyrsta varmadælan fyrir heilt byggðarlag hér á landi.

Hitaveitan notar mest ódýrt ótryggt rafmagn til að hita vatnið. Ívar Atlason, tæknifræðingur hjá HS Veitum, segir að óvissa ríki um ótryggða orku vegna ástandsins í raforkuframleiðslunni. Rifjar hann upp að á síðasta ári hafi verið skrúfað fyrir rafmagn til hitaveitunnar. Þá sé útlit fyrir að raforkuverð hækki hér á landi.

Varmagjafi varmadælunnar er 6-12 gráðu heitur sjór sem borað verður eftir. Sjórinn við Vestmannaeyjar er tiltölulega hlýr vegna áhrifa Golfstraumsins sem flytur hlýjan sjó frá miðbaug norður í höf, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert